Nokia 9300i - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem

notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta tæki

uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er

haft að minnsta kosti 1.5 sm (5/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á

líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá

líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending

gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu

er lokið.