Nokia 9300i - Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum um áhrif af útvarpsbylgjum

background image

Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum um áhrif af útvarpsbylgjum

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem

alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og

innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk

SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar

á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur

SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf

til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt

viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra 0.29 W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi

upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Nánari upplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com.

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

Copyright © 2005-2006 Nokia. All Rights Reserved.

104