Nokia 9300i - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á skiltum og

leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug

á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum á

eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í

eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að

sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir þilfari á bátum;

svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði

þar sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Copyright © 2005-2006 Nokia. All Rights Reserved.

103