Nokia 9300i - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar

aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust

tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.

Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2. Styddu á eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og búa tækið undir símtöl.
3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4. Stutt er á takkann .
Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Ef tækið er með

utannetssniði þarf að skipta um snið til að gera símaaðgerðina virka áður en hægt er að hringja neyðarsímtal. Nánari upplýsingar

má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina

samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.