Nokia 9300i - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,

svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi.

Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda

hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus

tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim

efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast

út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum

eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg

meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra

fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.