Nokia 9300i - Upplýsingar um rafhlöðu

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Rafhlaða nær ekki fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og

afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur

úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal kaupa nýja rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem

samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með

þessu tæki.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna

rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt

og smátt ef hún er ekki í notkun.
Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt,

bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á

rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið

skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu

hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15 °C til 25 °C (frá 59 °F til 77 °F). Tæki með of

heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost takmarkandi

áhrif á rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal

rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja

þeim með heimilisúrgangi.