![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia 9300i/is/Nokia 9300i_is089.png)
Þráðlaust staðarnet (þráðlaust LAN)
Hömlur kunna að vera á notkun þráðlausra staðarneta (LAN) á sumum stöðum. Kannið það hjá staðaryfirvöldum eða
þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem byggja á þráðlausu staðarneti eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni á meðan aðrar aðgerðir eru notaðar
krefjast aukins rafmagns og draga úr endingu rafhlöðunnar.
Tækið þitt er samþykkt til notkunar á þráðlausu staðarneti. Þú getur notað þráðlaust staðarnet til að senda og taka við tölvupósti
og tengt tækið við Internetið.
Tækið styður eftirfarandi eiginleika fyrir þráðlaust staðarnet:
• IEEE 802.11b og IEEE 802.11g staðla
• Notkun á tíðni 2.4 GHz með því að nota DSSS (direct sequence spread spectrum) útvarpstækni.
• WEP (Wired equivalent privacy) gagnadulkóðun.
• Varinn Wi-Fi aðgang (WPA og WPA2)
Athugaðu að WEP og WPA/WPA2 eiginleikana er einungis hægt að nota ef símkerfið styður þá.
Ef þú færir tækið á annan stað innan þráðlausa staðarnetsins og utan seilingar aðgangsstaðar þráðlausa netsins, getur
reikieiginleikinn tengt tækið þitt sjálfkrafa við annan aðgangsstað sem tilheyrir sama netkerfi. Á meðan þú heldur þig innan
seilingar aðgangsstaða sem tilheyra sama neti getur tækið þitt haldið tengingunni við netið.
Ábending: Þráðlausri staðarnettengingu er komið á þegar þú býrð til gagnatengingu með því að nota aðgangsstað á
þráðlausu staðarneti. Virka þráðlausa staðarnettengin er rofin þegar þú lýkur gagnatengingunni.
Tækið þitt leyfir ólíkar tegundir samskipta við þráðlaust staðarnet. Hægt er að velja á milli tveggja notkunarsniða: grunnvirki
eða sértækt
• Grunnvirkissniðið leyfir tvær tegundir samskipta: þráðlaus tæki eiga samskipti sín á milli í gegnum aðgangsstað á þráðlausu
staðarneti eða þráðlaus tæki eiga samskipti við tæki á tengdu staðarneti í gegnum aðgangsstað á þráðlausu neti.
Kosturinn við grunnvirkissniðið er að þú getur haft meiri stjórn á nettengingunum vegna þess að þær fara um aðgangsstað.
Þráðlaust tæki getur haft aðgang að þjónustum sem eru í boði á hefðbundnu tengdu staðarneti: gagnagrunni fyrirtækis,
tölvupósti, Internetinu og öðrum netmöguleikum, svo dæmi sé tekið.
• Með forritum frá þriðja aðila getur þú sent og tekið við gögnum beint í sértæka haminum, til dæmis til að prenta út. Ekki er
þörf á neinum aðgangsstað á þráðlausu staðarneti. Stilltu einfaldlega nauðsynlegar stillingar og byrjaðu samskiptin. Það er
auðvelt að setja upp sértæk net, en samskiptin eru takmörkuð við tæki sem eru innan seilingar.
Sjá „Aðgangsstaður fyrir þráðlaust staðarnet settur upp“, bls. 69.
Sjá „Sértækt net sett upp“, bls. 84.