Nokia 9300i - Gögn send með Bluetooth

background image

Gögn send með Bluetooth

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda sumar myndir, tónlist (þar á meðal

hringitóna) og annað efni.
Aðeins ein Bluetooth-tenging getur verið virk í einu.
1. Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda. Ef þú vilt t.d. senda mynd í annað tæki, opnaðu

Images

forritið.

2. Veldu hlutinn sem þú vilt senda, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Send

>

Via Bluetooth

.

3. Þau Bluetooth-tæki sem fundist hafa við leit skömmu áður birtast fyrst í nýrri leit. Þú sérð merki tækisins og nafn þess. Styddu

á

Search again

til að hefja nýja leit. Til að stöðva leitina, styddu á

Stop

.

4. Veldu tækið sem þú vilt tengjast við og styddu á

Select

.

5. Ef hitt tækið fer fram á pörun til að gera gagnaflutning mögulegan ert beðið um aðgangskóða. Búðu til þinn eiginn

aðgangskóða (1-16 tölur að lengd) og gerðu samkomulag við notanda annars Bluetooth-tækis um að nota sama kóða.

Aðgangskóðinn er aðeins notaður einu sinni og þú þarft ekki að leggja hann á minnið. Tæki sem ekki hafa notendaskil eru

með fastan aðgangskóða. Eftir að pörun lýkur er tækið vistað á

Paired devices

síðuna.

6. Þegar tengingu hefur verið komið á birtist tilkynningin

Sending...

.