Nokia 9300i - Tækið sérsniðið

background image

Tækið sérsniðið

Þú getur sérsniðið tækið á þitt á nokkra vegu.
• Fram- og bakhliðar - Þú getur skipt um framhlið á tækinu þínu.
• Valtakkar fyrir hliðar - Þú getur breytt aðgerðunum sem eru sýndar fyrir ofan vinstri og hægri valtakkana.
• Skjáborð - Þú getur raðað forritunum, flýtivísunum og minnispunktum í hópa og búið til nýjar möppur á Skjáborði.
• Minn eigin takki - Þú getur stillt Minn eigin takka til að opna uppáhaldsforritið þitt.
• Bakgrunnsmyndir - þú getur sett upp bakgrunnsmynd á símaskjánum og communcator-skjánum.
• Litaskema - Þú getur breytt litaskemum í tækinu þínu.

Skipt um framhlið

Til athugunar: Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið og önnur tæki áður en fram- og bakhlið eru

fjarlægðar. Forðast skal að snerta rafræna íhluti þegar verið er að skipta um fram- og bakhliðar. Alltaf skal geyma og

nota tækið með áföstum fram- og bakhliðum.

1. Styddu á sleppihnapp framhliðarinnar (1) og lyftu upp framhliðinni (2) í stefnu örvarinnar. Byrjaðu neðst á tækinu og endaðu

á því að sleppa festihökunum efst á tækinu.

2. Lyftu upp framhliðinni í stefnu örvarinnar.

3. Til að skipta um framhliðina, láttu læsihökin standast á við efsta hluta tækisins í lágu horni.

4. Þrýstu framhliðinni niður á við þar til hún læsist.