Nokia 9300i - Skjöl

background image

Skjöl

Í

Documents

geturðu búið til og breytt textaskjölum. Þú getur sett inn og skoðað myndir og aðrar skrár í skjölunum.

Documents

er eitt af þeim forritum sem eru til staðar í

Office

hópnum.

Office

inniheldur einnig

Sheet

og

Presentations

forritin,

Calculator

ásamt

File manager

forritinu fyrir vinnslu skráa og mappa. Til að opna

Office

hópinn, veldu

Desk

>

Office

og ýttu á

Open

.

Þú getur opnað, breytt og vistað skjöl sem eru búin til í 97 útgáfu Microsoft Word fyrir Windows og síðari útgáfum. Athugaðu

að ekki er stuðningur við alla eiginleika og snið upphaflega skjalsins. Upphaflega skjalið má ekki vera varið með lykilorði.

Eingöngu er hægt að skoða skjöl sem eru búin til í öðrum útgáfum af Microsoft Word. Það getur reynst ómögulegt að opna stóra

skrá, eða það getur tekið nokkurn tíma.