Nokia 9300i - Utannetssniðið stillt

background image

Utannetssniðið stillt

Ótengda sniðið kemur í veg fyrir að þú kveikir óvart á símanum þínum, notir Bluetooth, sendir eða takir við boðum, og það lokar

einnig öllum Internettengingum sem gætu verið virkar þegar ótengda sniðið er valið. Athugaðu hinsvegar að ótengda kemur

ekki í veg fyrir að þú getir komið á nýrri þráðlausri staðarnetstengingu. Því skaltu muna að fara að öllum viðeigandi

öryggisreglum þegar þráðlausri staðarnetstengingu er komið á og hún notuð.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja eða svara símtölum, eða nota aðrar aðgerðir sem þurfa tengingu

við símkerfi. Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Þú getur, hins vegar, hringt

neyðarsímtöl í ótengdu sniði með því að styðja á rofann á tækinu og slá síðan inn opinbera neyðarnúmerið. Þetta er

aðeins hægt að gera í viðmóti símans, ekki í viðmóti communicator. Ef tækinu hefur verið læst, færðu inn lykilnúmerið

til að virkja símaaðgerðina. Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið.
Svo hægt sé að hringja neyðarsímtal í ótengdu sniði eða þegar tækið er læst þarf tækið að þekkja númerið sem opinbera

neyðarnúmerið. Ráðlegt er að skipta um snið eða taka tækið úr lás með því að færa inn lykilnúmerið áður en

neyðarsímtal er hringt.

Til að virkja ótengda sniðið, styddu á Valmynd og veldu >

Offline

.

Til að leyfa öll samskipti aftur, styddu á Valmynd og veldu >

Exit Offline profile

>

OK

. Kveiktu síðan á símanum.

Ábending: Þú getur ræst utannetssniðið úr öllum forritavalmyndum eða úr símanum.