Nokia 9300i - Spilun hljóð- og myndinnskota

background image

Spilun hljóð- og myndinnskota

Þú getur spilað hljóð- og myndinnskot sem eru geymdar í minni tækisins eða á minniskorti, sem hafa verið sendar í tækið með

tölvupósti eða úr samhæfri tölvu, eða sem hægt er að straumspila gegnum Netið.
Framvindulínan sýnir spilunartíma, stöðu og lengd hljóð- eða myndinnskotsins. Á meðan spilun er í gangi er gert hlé á

myndspilun á meðan aðalvalmynd eða hvers kyns skjár er birtur. Hreyfimyndir birtast í miðju myndrammans bæði lóðrétt og

lárétt. Verði hreyfimyndin of stór annað hvort á breiddina eða hæðina þegar hún fyllir út í skjáinn breytist stærð hennar áður

en hún er birt til að viðhalda upprunalegu sniðhlutfalli myndarinnar.

Til að hefja straumspilun á skrá skaltu finna skrána á Netinu og styðja á

Play

. Ef vandamál við tengingu valda villu í spilun mun

RealPlayer

reyna sjálfkrafa að tengjast aftur við netaðgangsstaðinn.

Styddu á

Play

til að spila vistaðar skrár. Spilun stöðvast sjálfkrafa.

Styddu á

Stop

til að stöðva spilun eða straumspilun. Ef vistun í biðminni eða tenging við straumspilunarstað stöðvast, stöðvast

sömuleiðis spilun skrárinnar og hún hefst aftur frá byrjun. Skráin er enn valin í lista.
Til að skoða myndinnskotið í fullri skjástærð, styddu á Valmynd og veldu

View

>

Full screen

. Þetta breytir stærð myndrammans

í venjulega eða fulla skjástærð.
Til að vista hljóð- og myndskrár, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Save clip as...

. Til að vista nettengil, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Save link as...

.

Til að breyta stærð myndinnskots, styddu á Valmynd og veldu

View

>

Zoom in

eða

Zoom out

. Súmmun eykur stærð myndarinnar

til að ná yfir sem stærstan hluta myndrammans og viðhalda sniðhlutfallinu eða endurheimtir upprunalega stærð myndarinnar.
Til að loka

RealPlayer

, styddu á

Exit

. Vistun í biðminni, tenging við straumspilunarstað og spilun skrárinnar stöðvast.

Ábending: Til þess að bæta við flýtivísi fyrir innskot, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Add to Desk...

. Þannig verður til

flýtivísir til þess innskots sem valið var. Ekki er hægt að búa til flýtivísi til óvistaðrar skráar.