Nokia 9300i - Kynningar búnar til

background image

Kynningar búnar til

Til að búa til nýja kynningu, ýttu á Valmynd og veldu

File

>

New presentation

. Opnaðu textabox með því að ýta á tab-takkann

og byrjaðu að skrifa. Þegar því er lokið, ýttu á

OK

og færðu þig í næsta textareit. Ef þú vilt nota sniðmát, ýttu á Valmynd og veldu

File

>

New presentation

>

Use template...

. Flettu upp möppunni sem sniðmátið er vistað í.

Copyright © 2005-2006 Nokia. All Rights Reserved.

53

background image

Ábending: Til að færa til texta innan glærunnar, veldu textasvæðið með tab-takkanum og flettu með stýripinnanum.

Til að færa textann í minni skrefum, ýttu á Ctrl+skrun með stýripinnanum. Á sama hátt getur þú fært aðra hluti, eins

og t.d. myndir og hvers kyns form.

Til að bæta nýrri glæru við kynningu, veldu glæruna sem nýja glæran á að koma á eftir og ýttu á

Insert slide

. Veldu þá uppsetningu

sem þú vilt nota á nýju glærunni og ýttu á

Insert

.

Til að setja myndir og form inn í kynningu, ýttu á Valmynd og veldu

Insert

>

Picture...

eða

Autoshape...

. Flettu upp möppunni

sem myndin er vistuð í eða veldu form af listanum og ýttu á

Insert

.

Ábending: Til að breyta stærð hlutar, ýttu á Shift+skrun til vinstri, hægri, upp eða niður. Til að breyta stærðinni í smærri

skrefum, ýttu á Ctrl+Shift+skrun til vinstri, hægri, upp eða niður.

Til að setja textabox inn í kynningu, ýttu á Valmynd og veldu

Insert

>

Text box

. Sláðu inn textann og ýttu á

OK

.

Ábending: Valmyndin bíður upp á fleiri valkosti til að sníða textann: styddu á Valmynd og veldu

Format

og svo valkostinn

sem þú vilt. Þú getur breytt sniðinu á stöfum og tölum, bætt inn áherslumerkjum og jafnað texta.

Til að vista kynningu, ýttu á Valmynd og veldu

File

>

Save

>

Save presentation

eða

Save as...

. Skráin er vistuð á PPT sniði.

Til að sníða hlut sem þú hefur sett inn á glæru, veldu hlutinn, ýttu á Valmynd og veldu

Format

>

Object...

. Þú getur breytt stærð

hlutarins eða snúið honum. Athugið að ekki er hægt að snúa öllum hlutum, líkt og myndum eða töflum.