Nokia 9300i - Nokia PC Suite

background image

og birtir villur í samstillingu, ef einhverjar voru.
Frekari upplýsingar um samstillingu má finna í notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite eða hjálpinni fyrir Nokia PC Sync.

Nokia PC Suite

Nokia PC Suite býður upp á ýmis forrit til að nota með Nokia 9300i. Til dæmis geturðu samstillt tengiliði, dagbókarupplýsingar,

tölvupóst og minnislista milli tækisins og samhæfrar tölvu með Nokia PC Sync, haldið utan um möppur í tækinu með Nokia

Phone Browser, gert öryggisafrit af eða endurheimt persónuleg gögn með Nokia Content Copier og sett upp forrit með Nokia

Application Installer.
Settu Nokia PC Suite upp af geisladisk eða gegnum www.nokia.com. Aðeins er hægt að nota Nokia PC Suite með Windows 2000

og Windows XP. Viðbótarupplýsingar um hvernig á að setja upp eða nota PC Suite má finna í Notkunarhandbók fyrir Nokia PC

Suite á geisladisk eða hjálpargluggum í forritum Nokia PC Suite.
Til að nota Nokia PC Suite þarftu að tengja tækið þitt við samhæfa tölvu með CA-53 gagnasnúru, Bluetooth eða innrauðri

tengingu.

Sjá „Tengimöguleikar“, bls. 84.

• Ef þú vilt nota snúru þarftu að nota nýjasta rekilinn fyrir snúruna. Rekillinn er settur upp þegar Nokia PC Suite er sett upp.

Nánari upplýsingar er að finna í notendahandbók Nokia PC Suite.

• Ef þú vilt nota Bluetooth, paraðu saman tækið og samhæfða tölvu og stilltu tölvuna eins og viðurkennt er.

Sjá „Parast við

tæki“, bls. 85.

• Ef þú vilt nota innrauða tengingu, virkjaðu innrauðu tenginguna á tækinu.

Sjá „Innrautt“, bls. 86.

Virkjaðu innrauðu

tenginguna á samhæfðu tölvunni ef þörf krefur.

Hugsanlega þarf að setja upp eða uppfæra rekla fyrir Bluetooth eða innrautt tengi ef þú vilt nota tækið sem mótald. Frekari

upplýsingar má finna á geisladiskinum í sölupakkanum, www.nokia.com og notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite.