Nokia 9300i - Java

background image

Java™ forrit sett upp

Þegar þú setur inn Java forrit með vottaðri undirskrift, á að vera kveikt á símanum og gilt SIM-kort verður að vera í honum.
1. Leitaðu að uppsetningarskránni í minni tækisins eða á minniskorti, veldu skrána og styddu á enter-takkann til að hefja

uppsetninguna. Ef þú til dæmis fékkst uppsetningaskránna senda sem viðhengi í tölvupósti, farðu í pósthólfið, opnaðu

tölvupóstinn, veldu uppsetningarskrá og styddu á enter-takkann til að hefja uppsetninguna.

2. Staðfestu uppsetninguna. Skráarviðskeytið .JAR er áskilið fyrir uppsetninguna. Ef það vantar getur verið að tækið biðji þig

um að hlaða því niður. En enginn aðgangsstaður er tilgreindur ert þú beðinn um að velja einn. Þegar þú hleður niður .JAR

skránni gætirðu þurft að slá inn notendanafn og lykilorð til að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið þau hjá

dreifingaraðila forritsins.

3. Tækið lætur þig vita þegar uppsetningu er lokið.

Ábending: Á meðan þú ert að skoða vefsíður getur þú hlaðið niður uppsetningarskrá og sett hana upp strax . Athugaðu

að tengingin er virk í bakgrunninum á meðan á uppsetningu stendur.

Java

Þú getur sett upp og keyrt Java-forrit í tækinu þínu.

Sjá „Forrit og hugbúnaður settur upp“, bls. 82.

Java grunnurinn fyrir Nokia 9300i er J2ME. Þú getur leitað að Java-forritum með vafranum, hlaðið þeim niður af Netinu og geymt

þau í Forritamöppunni.
Notaðu

Application manager

til að halda utan um Java-forritin þín.

J2ME í tækinu þínu styður tvö Java umhverfi: MIDP og Persónulegt Snið.

Ábending: Upplýsingar um hugbúnaðarþróun (forritun) má finna á www.forum.nokia.com. Á Forum Nokia er einnig

að finna Series 80 Developer Platform, Java Software Development Kit (SDK), tól, tæknilegar athugasemdir og forrit.