![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia 9300i/is/Nokia 9300i_is083.png)
Symbian hugbúnaður settur upp
Þegar þú setur upp uppfærslu eða viðgerð á forriti verðurðu að vera með upprunalega eintakið eða fullt afrit til að endurheimta
forritið. Til að endurheimta upprunalega forritið, fjarlægðu forritið og settu það aftur upp með upphaflegu uppsetningarskránni
eða öryggisafritinu.
Til að setja upp hugbúnað, leitaðu að uppsetningarskránni í minni tækisins eða á minniskorti, veldu skrána og styddu á enter-
takkann. Ef þú til dæmis fékkst uppsetningaskránna senda sem viðhengi í tölvupósti, farðu í pósthólfið, opnaðu tölvupóstinn,
veldu uppsetningarskrá og styddu á enter-takkann til að hefja uppsetninguna.
Notaðu Forritastjórann til að fjarlægja hugbúnað.
Sjá „Application manager“, bls. 61.