Nokia 9300i - Data mover

background image

Data mover

Þú getur notað

Data mover

til að flytja tiltekin gögn, svo sem tengiliði og stillingar, úr Nokia 9200 Communicator í Nokia 9300i

með innrauðu tengi eða minniskorti. Áður en þú byrjar skaltu ganga úr skugga um að það sé nægjanlegt minni laust í tækjunum

eða minniskortinu fyrir flutninginn. Athugaðu að ef laust minni í Nokia 9300i símanum er minna en 2 Mb geturðu ekki flutt nein

gögn.
Notaðu ekki Nokia 9300i símann þegar þú notar gagnaflytjarann. Slökktu á símanum, ef það er mögulegt. Gakktu úr skugga um

að næg hleðsla sé á rafhlöðunni. Ef hún er ónæg skaltu tengja tækið við hleðslutæki.

Til athugunar: Áður en þú getur notað samhæft minniskort með Nokia 9300i verður þú að umbreyta minniskortinu

með Gagnaflytjaranum og setja aftur upp forritin sem þú hefur áður sett upp á minniskortinu. Þú skalt hins vegar ekki

setja aftur upp forrit sem voru foruppsett fyrir Nokia 9210 Communicator. Nokia 9300i inniheldur nýrri útgáfur af

þessum forritum og þú verður að nota þær útgáfur með Nokia 9300i.

Um fleiri skref getur verið að ræða, háð þeirri gerð gagna sem þú vilt flytja, flutningsaðferðinni sem þú vilt nota, því hversu

mikið minni er laust í tækjunum eða á minniskortinu þínu, eða fjölda fyrri flutninga sem tókust eða mistókust. Gakktu úr skugga

um að innrauðu tengin á tækjunum snúi hvort að öðru.
Lestu alltaf leiðbeiningarnar sem gagnaflytjarinn birtir á skjánum.
1. Farðu í

Desk

>

Tools

>

Data mover

. Ef gögn eru á minniskorti, stingdu því þá í símann þinn úr Nokia 9200 línu Communicator.

Styddu á

Continue transfer

.

2. Veldu borg og land og styddu á

OK

.

3. Virkjaðu innrauða tengið á báðum tækjum, gakktu úr skugga um að tengin snúi hvort að öðru og styddu á

Continue

. Innrauðri

tengingu er komið á milli tækjanna.

4. Styddu á

Send data collector

til að senda gagnaflytjarann í Nokia 9200 Communicator. Gagnaflytjarinn er sendur sem innrauð

skilaboð í Nokia 9200 Communicator. Styddu á

Open

í 9200 útgáfunni af Communicator til að setja upp Gagnasöfnunartólið.

Ef

Open

er ekki til staðar skaltu styðja á

Save

til að vista uppsetningarskrána og opna hana úr Skráarstjóranum. Gagnaflytjarinn

fer sjálfkrafa í gang eftir uppsetninguna. Stjórnaðu því sem eftir er af gagnaflutningnum með Nokia 9300i. Þegar

Gagnaflytjarinn hefur verið settur upp, styddu á

Connect data coll.

í Nokia 9300i símanum.

5. Í Nokia 9300i skaltu velja gögnin sem þú vilt flytja úr Nokia 9200 Communicator. Þú getur flutt dagbókar- og

tengiliðaupplýsingar, skilaboð, stillingar, skjöl og myndir. Sumar skrár, líkt og nafnspjöld í skilaboðum og tölvupóstskeyti

sem ekki eru vistuð í Innhólfinu, eru ekki flutt.

6. Styddu á

Transfer infrared

eða

Transfer mem. card

, eftir því hvaða aðferð þú vilt nota.

7. Styddu á

Start transfer

. Ef flutningurinn stöðvast skaltu endurræsa gagnaflytjarann og halda flutningnum áfram. Ef

flutningurinn stöðvast aftur er mögulegt að það sé eitthvað að gögnunum sem þú ert að reyna að flytja. Ræstu

gagnaflutninginn aftur, án þess að velja þau gögn sem virðast valda vandamálinu.

8. Styddu á

OK

eftir flutninginn til að ljúka ferlinu.

9. Styddu á

Exit

til að loka gagnaflytjaranum, eða

Convert mem. card

til að umbreyta minniskorti til notkunar í Nokia 9300i.

Það getur tekið nokkurn tíma að flytja mikið magn gagna úr Nokia 9200 Communicator.