Nokia 9300i - Skrunað og valið

background image

Skrunað og valið

Notaðu örvalyklana eða stýripinnann til að færa bendilinn og velja atriði á notendaviðmóti communicator.
Skrunað um notendaviðmót communicator
Þú getur notað fjóra mismunandi örvalykla til að skruna. Að skruna merkir að fara upp, niður, vinstri og hægri í forritahópunum

á skjáborðinu, í forriti, í textanum eða í valmyndinni. Stýripinninn virkar á svipaðan hátt og örvalyklarnir, en þú getur líka þrýst

stýripinnanum niður til að opna skrár eða framkvæma aðgerð undirstrikaðs skipanahnapps.

H a f i s t h a n d a

Copyright © 2005-2006 Nokia. All Rights Reserved.

12

background image

Valið
Til að velja texta vinstra megin við bendilinn, ýttu á og haltu Shift-lyklinum inni og ýttu á vinstri örvatakkann þar til textinn

hefur verið valinn. Til að velja texta hægra megin við bendilinn, ýttu á og haltu Shift-lyklinum inni og ýttu á hægri örvatakkann

þar til textinn hefur verið valinn.
Til að velja mismunandi atriði eins og skilaboð, skrár eða tengiliði, ýttu á örvalyklana upp, niður, vinstri eða hægri til að skruna

að atriðinu sem þú vilt.
Til að velja eitt atriði í einu, flettu að fyrsta atriðinu, ýttu á og haltu inni Ctrl-lyklinum, flettu að næsta atriði og ýttu á bilslána

til að velja það.
Til að velja hlut í skrá, til dæmis viðhengi í skjali, færðu bendilinn að hlutnum þannig að ferhyrnd merki birtist sitt hvoru megin

við hlutinn.
Til að velja reit í vinnuörk, færðu bendilinn að reitnum sem þú vilt. Til að velja heila röð, færðu bendilinn að fyrsta reitnum í

fyrsta dálkinum í röðinni og ýttu á Shift+vinstri örvalykilinn. Til að velja heilan dálk, færðu bendilinn að fyrsta reitnum í dálkinum

sem þú vilt velja og ýttu á Shift+ör upp.