Nokia 9300i - Minniskort

background image

Minniskort

Til athugunar: Áður en þú notar minniskort úr Nokia 9210 Communicator sölupakkanum í Nokia 9300i símann þinn,

verður þú að umbreyta minniskortinu með gagnaflytjaranum og setja forritin, sem áður höfðu verið sett upp fyrir

minniskortið, aftur upp. Þú skalt hins vegar ekki setja aftur upp forrit sem voru foruppsett fyrir Nokia 9210

Communicator. Nokia 9300i inniheldur nýrri útgáfur af þessum forritum og þú verður að nota þær útgáfur með Nokia

9300i.

Nokia tækið þitt styður aðeins FAT16 skráarkerfið fyrir minniskort. Ef þú notar minniskort úr öðru tæki, eða ef þú vilt tryggja

samhæfni minniskortsins við Nokia tækið þitt, þarftu e.t.v. að forsníða minniskortið með Nokia tækinu þínu. Athugaðu þó að

öllum gögnum í minniskortinu er eytt varanlega þegar þú forsníður minniskortið.
Minniskort sett inn og tekið út
1. Ef þú vilt setja í minniskort skaltu renna því í minniskortaraufina (2). Gakktu úr skugga um að sneidda hornið á minniskortinu

snúi að SIM-kortsraufinni og að snertiflötur þess snúi niður. Bakhliðin verður að vera á tækinu til að það skynji minniskortið.

H a f i s t h a n d a

Copyright © 2005-2006 Nokia. All Rights Reserved.

14

background image

2.

Mikilvægt: Ekki má fjarlægja MMC-kortið í miðri aðgerð þegar verið er að lesa af kortinu. Ef kortið er fjarlægt í miðri

aðgerð getur það valdið skemmdum á minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta

skemmst.

Ef tækið inniheldur minniskort geturðu fjarlægt það eftir að þú hefur fjarlægt bakhliðina, jafnvel þó svo rafhlaðan sé í tækinu.

Ef minniskort inniheldur forrit birtast þau í

Desk

eða í einhverjum hópnum á Skjáborðinu, allt eftir því um hvaða forrit er að

ræða.
Nánari upplýsingar er að finna í

File manager

og

„Öryggi minniskorts“

á bls.

59

.