Nokia 9300i - Nettengistillingar samskipaðar

background image

Nettengistillingar samskipaðar

Þessar stillingar hafa áhrif á allar nettengingar.
Til að samskipa algengar nettengistillingar, veldu

Connections

>

Internet setup

. Veldu

Idle

síðuna og tilgreindu eftir hvað langan

tíma tengingin rofnar sjálfkrafa og fer aftur í biðham ef hún er ekki notuð. Þú getur tilgreint mismunandi tíma fyrir hverja tegund

tengingar, en stillingin hefur áhrif á alla netaðgangsstaði sem nota þessa tegund tengingar.
Sumar nettengingar geta virst óvirkar en senda og taka samt á móti gögnum í bakgrunninum. Þessar tengingar geta frestað

því að tengingunni sé lokað.
Veldu

Other

síðuna og tilgreindu stillingarnar.

Ask before connecting

— Ef þú velur

Yes

, birtist samtal í hvert sinn sem þú tengist Netinu sem biður þig um að staðfesta

tenginguna eða breyta netaðgangsstaðnum.

GPRS operating mode

— Veldu

Always on

til að halda GPRS tengingunni í viðbragðsham og kveikja hratt á flutningi

pakkagagna þegar á þarf að halda. Ef þú velur

On when needed

, notar tækið GPRS tengingu aðeins þegar þú ræsir forrit eða

aðgerð sem þarfnast þess. Athugaðu að ef engin GPRS endurvarpi er til staðar og þú valdir

Always on

, mun tækið reglulega

reyna að koma á GPRS tengingu.

Til að breyta forgangsröð netaðgangsstaða, veldu

Connections

>

Internet setup

. Styddu á

Priority

, veldu netaðgangsstað og

styddu á

Move up

eða

Move down

. Þegar þú kemur á gagnatengingu er leitað að aðgangsstöðum í þeirri röð sem þú tilgreindir.