WEP-síða
Þú getur búið til allt upp í fjóra WEP-lykla. Athugaðu að sömu gildi verður að færa inn á aðgangsstaðinn á þráðlausa staðarnetinu.
•
WEP authentication
— Veldu
Open
eða
Shared
sem tegund auðkenningar á milli þráðlausa tækisins og aðgangsstaðarins á
þráðlausa staðarnetinu.
•
WEP key in use
— Veldu WEP-lykilinn sem þú vilt nota með netaðgangsstaðnum sem þú ert að búa til.
•
Key #1 length
— Veldu viðeigandi lengd lykils. Öryggisstig lykilsins er hærra eftir því sem fleiri bitar eru í lyklinum. WEP-lykill
samanstendur af leynilykli og 24-bita frumstillingarvektor. Til dæmis vísa sumir framleiðendur til 104-bita lykilsins sem 128-
bita lykils (104+24). Báðir lyklar bjóða upp á sama dulkóðunarstig og eru því samhæfir.
•
Key #1 type
— Veldu hvort þú vilt færa upplýsingar WEP-lykilsins í sextándakerfisformi (
HEX
) eða sem texta (
ASCII
).
•
Key #1 data
— Sláðu inn upplýsingar um WEP-lykilinn. Fjöldi stafa sem hægt er að slá inn fer eftir því hvaða lengd lykils þú
valdir. Til dæmis samanstanda lyklar sem eru 40 bita langir af 5 bók- eða tölustöfum eða 10 sextándakerfisstöfum.