Nokia 9300i - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lestu þessar einföldu leiðbeiningar. Að fylgja þeim ekki gæti reynst hættulegt eða ólöglegt. Tækið hefur bæði GSM-útvarp og útvarp á þráðlausu

staðarneti. Ef slökkt er á tækinu með því að styðja á rofann slokknar á báðum útvörpunum. Athugaðu hinsvegar að þegar slökkt er á tækinu

eða það notað í utannetssniði kemur það ekki í veg fyrir að þú getir komið á nýrri þráðlausri staðarnetstengingu. Því skaltu muna að fara að

öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þráðlausri staðarnetstengingu er komið á og hún notuð. Lestu alla notendahandbókina til að fá nánari

upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga

fyrir í akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á notagildi þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman

ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL

Tryggja skal að kveikt sé á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar. Styðja skal á endatakkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn

og hverfa aftur að upphafsskjánum. Neyðarnúmerið er valið og svo er stutt á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má

slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.